Vertu kyrr og vittu að ég er Guð
- Jun 27, 2022
- 3 min read
Updated: Aug 13, 2022

Vertu kyrr og vittu að ég er Guð!
Ég er það sem ég Er!
Þegar Abraham var þá var Ég!
Ég og faðirinn erum Eitt!
Ég er sannleikurinn, vegurinn og lífið
Þetta eru orð Guðs, orð Jesú Krists
Guðdómstign Jesú frá Nasaret er augljós og skýr í orðum hans og gjörðum.
Þríeing Guðs birtist í Guð faðir, sonur og heilagur andi. Guð steig niður og varð maður. Hann var syndlaus, gaf sig heiminum til að frelsa hann og beina brautina til sín. Hann elskaði okkur fyrst áður en við elskuðum hann. Þrátt fyrir það tók heimurinn ekki á móti honum því það elskaði heiminn meira en ljósið. Fólkið vildi ekki heyra sannleikann. Það valdi sína eigin guði og leiðir.
Guð varð maður til að við getum þekkt Guð okkar, hann gekk á meðal okkar, kenndi, huggaði, grét og fann til líkt og við sjálf. Hann þjónaði og þvoði fætur lærisveina sína. Auðmýkti sig þrátt fyrir að vera Guð. Sá hinn mesti þjónar. Setur sig ekki á stall. Jesú læknaði, heilaði og fann hina týndu. Hann var meðal ,,syndugra'' og leiddi þá til sín. Hann var ekki meðal þeirra sem töldu sig réttláta eins og hinir trúuðu Farisear sem kenndu sín eigin mannalögmál en ekki lög Guðs. Farisearnir sem Jesú kallaði hæsnara og nöðrukyn. Þeir sem að lokum krossfestu hann. Þeir sem stunduðu eigin réttlætingu og fordæmdu aðra líkt og sértrúarsöfnuðir trúarofbeldis í dag. Allt í hans nafni. Vei þeim. Við vitum hvað Jesú kallar þá. Þeir eru ekki hans ávextir, það ætti öllum að vera ljóst.
Jesú er vegur kærleikans, vegur friðar, vegur náðar og líknar. Í honum skýrir hann okkur með heilögum anda. Anda Guðs, sannleiksandinn sem vitnar um hann. Sá eini andi sem við eigum að taka við. Sá andi sem leiðir okkur heim.
Jesú dó fyrir syndir okkar, hann dó fyrir þig og fyrir mig og umbreytti því öllu í upprisu sinni. Gaf okkur eilíft líf. Allt það gamla er fallið. Eina sem þú þarft er að sýna iðrun og trúa á hann. Ekki í gegnum presta eða menn heldur með beinu sambandi við Hann. Þá tekur þú við náðargjöf hans, frelsi í Jesú nafni og heilögum anda. Hann er sá eini sem getur umbreytt hjörtu mannanna.
Jesú kenndi konum jafnt mönnum þó tíðarandinn fyrir 2000 árum fordæmdi það. Jesú elskaði konur og menn jafnt. Við erum öll sköpunarverk Guðs, jafn dýrmæt og einstök í hans augum. Lærisveinar Jesú voru líka konur eins og María Magdalena. Hann frelsaði hana og hún gekk með honum í kærleika og trúfestu allt til dauðadags. Hann birtist henni fyrst í upprisu sinni. Það er ritað í öllum guðspjöllunum þrátt fyrir að vitnisburður konu var ekki tekin alvarlegur á þeim tíma. En það eitt birtir sannleiksgildi Biblíunnar í því mikla feðraveldi sem þá var. En orð Guðs og merking þess hafa staðið óbreytt í 2000 ár og er sterkara en hvert tvíeggjað sverð.
Hann kallar okkur börn Guðs og í gegnum hann nálgumst við Guð. Hann kallar okkur til sín í einingu undir sér. Einingu í Kristi.
Guð er upphafið og skapaði allan alheiminn, jörðina og náttúruna sem hefur frá upphafi vitnað um Hann! Enginn hefur komist hjá því að sjá máttarverks Guðs. Fegurðin vitnar um Skaparann. Því allt sem er fallegt og lyftir okkur upp er frá Almættinu. Alpha og Omega alls sem er.
Hann lofar okkur nýrri Jörð undir einingu sinni. Þar verður engin illska, allt illgresið sem Guð gróðursetti ekki, verður tekið í burtu. Allt óvinarins vald verður fellt. Öll illska út rekin, allt ofbeldi burt, ljótleiki burtrækur. Það lofar Guð okkur. Hann lofar friðsamlegum heimi fegurðar sem við öll þráum. Hann er hinn æðsti, hinn mikli konungur sem mun ríkja að eilífu.
Ertu tilbúin að stíga inn í nýja jörð með honum? Hann segir okkur að vera vakandi því við vitum ekki hvenær tíminn kemur.
Margir trúa að við séum að lifa hinu síðustu tíma. Hver veit aðeins góður Guð veit það. En í Jesú Kristi er enginn ótti einungis kærleikurinn, sannleikurinn og eilífa lífið.
Jesú segir sannleikurinn gerir þig frjálsan
Þess vegna er mikilvægt að leita hans og hlusta á orð hans.
,,frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritninginn segir." Jesús (Jóh. 7.38)
,,Það er andinn sem lífgar, maðurinn án hans megnar ekkert. Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf." Jesús, (Jóh.6.63)
,,Kenning mín er ekki mín heldur hans er sendi mig. Sá sem vill gera vilja hans mun komast að raun um hvort kenningin er frá Guði eða ég tala af sjálfum mér. Sá sem talar af sjálfum sér leitar eigin heiðurs, en sá sem leitar heiðurs þess er sendi hann er sannorður og í honum er ekkert ranglæti." Jesús, (Jóh.7.16-18)



Comments