top of page

Að vera lærisveinn Jesú

  • Sep 12, 2022
  • 2 min read


Hvað þýðir það að fylgja Jesú? Jesú kallar okkur að fylgja sér. María Magdalena fylgdi honum, María móðir hans fylgdi honum, lærisveinarnir 12 fylgdu honum og 2000 árum seinna eru milljarðar sálna sem endurfæðast í anda og fylgja honum.


Þegar þú ákveður að fylgja Jesú þá breytist lífið þitt. Þegar þú tekur þá ákvörðun að taka við náðargjöf Jesú og fyrirgefningu þá verður þú settur frjáls. Hlekkir sem áttu hjarta þitt hvort sem það eru fíknir, ásælni í heiminn og starfsferil, hamsturshjól verka, andlegra heita og sjálfshyggjan hverfa.


Þú hættir að vera miðja alheimsins og Jesú Kristur verður miðjan og fókusinn beinist að Honum. Guði sem kom niður í mannslíkama til að frelsa þig og endurheimta.


Jesú mun aldrei troða sér upp á þig. Hann vill að þú einlæglega leitar hans og finnur hann og að þú velur hann sjálfviljugur. Hann bankar á dyrnar að hjarta þínu en hurðarhúninn er þínum megin. Þú verður að opna sjálfviljug/ur.


Hann mun alltaf opinbera sig fyrir þeim sem einlæglega leita hans. Öll sköpunin vitnar um hann. Því í gegnum Hann var heimurinn skapaður. Allt það sem er fallegt er gott og geislandi af kærleika er hans máttarverk. Við erum öll sköpun hans og allar þær góður gjafir sem við höfum þegið eru frá Honum. Þegar þú leyfir honum að taka yfir líf þitt þá leyfir þú honum að fullkomna það góða verk sem hann byrjaði að gefa í gegnum góðu gjafir og hæfileika þína. Hann mun slípa þær til og móta þig eins og leir í höndum Skaparans.

Þú lærir að treysta honum og leyfir vilja Hans að verka í þér og þínu lífi.


Gefðu eftir til Skaparans og hann mun fylla tómarúmið í hjarta þínu og gera þig heilan.


,, Ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.” Jesús (Opin.3.20)


Hvað er betra en að eiga frelsarann sem besta vin þinn og huggara <3


 
 
 

Comments


Um Líf í Kristi

Mig langar að leyfa þessari síðu að vera Guði til dýrðar, beina sjónum að fagnaðarboðskap Jesú. Hjálpa fólki að öðlast trú sem færir von, gleði, fegurð og kyrrð í hjarta. Megi orðin og boðskapur á þessari síðu rata í frjósaman jarðveg til vaxtar og þroska.

#lifikristi

Posts Archive

Keep Your Friends
Close & My Posts Closer.

Thanks for submitting!

  • Twitter
  • Facebook
  • Instagram

© 2023 by by Leap of Faith. Proudly created with Wix.com

bottom of page