Að endurfæðast í anda og sannleika
- Sep 20, 2022
- 2 min read
Að fylgja Jesú og endurfæðast í anda Hans er að taka á móti honum og gefast honum að fullu.
Þú fellur því gamla og gamla sjálfið er krossfest með honum og þú endurfæðist í anda og sannleika og tekur á móti eilífu lífi og heilögum anda hans.
Þú leitast eftir að lifa eftir orði hans og vilja. Ef eitthvað af því gamla sem var ekki frá honum, þá fellur þú frá því, þannig getur breytingin verið 180 gráður í aðra átt. Þú getur ekki fylgt Jesú og dýrkað annan Guð, eða farið með möntrur frá öðrum leiðum, eða gert rituöl og siði sem heiðra ekki Guð Almáttugan.
Jesú líkir sjálfum sér við brúðguma og sál þín er brúðurinn. Þú myndir ekki halda framhjá honum með því að dýrka aðra guði. Þú hefur gefist honum og sál þín er eignuð honum.
Það er gleði og friður að vera hans og að fá inngöngu í konungsríki hans.
Þú ert nú guðs barn og vilt þjóna föður þínum almáttugan skapar himins og jarðar.
Þannig verður , verði þinn vilji” ný bæn í auðmýkt. Þú leitast eftir að vera verkfæri hans og gera hans vilja.
Hann vill allt þitt hjarta, alla þína sál og líkami þinn er nú musteri heilags anda.
Meistari hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?
,,Jesús svaraði honum: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náungann þinn eins og sjálfan þig (Matt 22.37-39)
Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann. (Jóh 1.16)
Jesú segir; Sá sem tekur við mér tekur við þeim sem sendi mig (Matt 10.40)
Hver sem er ekki með mér er á móti mér og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir.(Matt 12.30)
Hver sem gerir vilja föður míns sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir.” (Matt.12.50)
Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinnn og fylgi mér. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna mun finna það. (Matt 16.25)
Megi þú finna leið að opna hjarta þitt fyrir frelsara þínum sem er með lifandi vatn lífsins þar sem flæða eilífar uppsprettur.




Comments